elliðaárdalurinn
01.06.2010 11:09:41 / absabs

meigineldstöð


Einar sagði m.a. frá myndun landsins í og utan Elliðaárdals. Elsta bergið væri um 3-4 milljón ára gamalt. Það fæddist í megineldstöð, sem kom upp  úr sjó utan núverandi lands, þar sem nú eru Viðey og Engey. Eldstöðin var virk þar til fyrir um 2 milljón árum. Þá féll hún saman er kvikuþróin undir henni tæmdist og eftir stóð hluti af jöðrum hennar, þ.e. meðal annars fyrrnefndar eyjar. Þar sem miðja eldstöðvarinnar var áður er nú um 50 metra dýpi. Þá var sjávarstaðan hærri og myndaðist t.d. vogur þar sem nú er Elliðaárdalur. Eftir að síðasta ísaldarskeiði lauk fyrir u.þ.b. 10.000 árum byrjaði landið að rísa hægt og bítandi. Dæmi um þáverandi sjávarstöðu má enn sjá í setlögum sunnan í dalnum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2010 11:05:51 / absabs

meira um dalinn

Elliðaárdalurinn er eitt fjölsóttasta útivistarsvæði Reykvíkinga enda býður hann upp á marga kosti til útivistar t.d vaða ,veiða ,ganga og liggja i sólbaði . Árnar eru kenndar við skip Ketilbjarnar gamla á Mosfelli, en hann kom hingað á skipi sínu Elliða og "kom í Elliðaárós" að því er segir í Landnámu.
Í Elliðaárdal eru stígar og brautir og fræðsluskilti um jarðfræði og gróður dalsins.
Reykjavíkurborg keypti Elliðaárnar árið 1906 til beislunar vatnsafls en Elliðaárstöð hefur framleitt rafmagn frá árinu 1906. Um það leyti hefur líklega hafist trjárækt í Elliðaárdalnum og uppgræðslu verið haldið áfram sleitulaust síðan. 
Jarðfræði Elliðaárdals er einstök vegna margbreytileika síns. Við Elliðaárósa eru merkileg setlög, kölluð Elliðavogslögin og má þar finna leifar ýmissa plantna sem uxu við Elliðavog fyrir nokkur hundruð þúsund árum og skeljar af grunnsævi.  Það má einnig finna jökulrákaðar grágrýtisklappir, hraun frá nútíma og sjávarhjalla. Í dalnum er jarðhitasvæði og eitt


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2010 10:56:07 / absabs

fuglalíf i elliðaárdalnum

 

 

 

Fuglalíf i Elliðaárdal er fjölbreytt , einkum á varptímanum.og talsvert fuglalíf er í dalnum allan ársins hring ekki síst um vetur þegar  nokkrar sjaldgæfar tegundir gera sig heimkomnar. Þótt byggðin hafi þrengt verulega að Elliðaánum verpa þar allmargar tegundir. Alls hafa á þriðja tug tegunda orpið i Elliðaárdal, flestar ofan Árbæjarstíflu.þar má m.a. nefna nokkrar andategundir straum önd ein þeirra en hún er afar fagur og litskrúðugur fugl. Af varpfuglategundum  sem eru fáliðaðar og óvíst hvort eigi sér framtíð í dalnum má nefna álft,straumönd ,rjúpu,jarðrakan,glókoll,svartþröst og steindepill


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2010 10:47:40 / absabs

upplýsingar um elliðaárdalinn

:haha:Elliðaárdalur liggur á milli Elliðavatns og Elliðavogs. Elliðaárnar falla úr Elliðavatni, þær kvíslast um miðbik dalsins og renna í tveimur lækjum til sjávar.

Elliðaárnar voru virkjaðar árið 1921, rafstöðvarbyggingin, sem enn stendur, var þá byggð og stíflur reistar við Árbæ og Elliðavatn. Rennsli Elliðaánna í þá daga er ekki eins og nú. Áin sem rann úr Elliðavatni nefnd Dimma, en var ekki kölluð Elliðaár fyrr en áin Bugða sameinaðist Dimmu á Víðivöllum. Rann þá Bugða eftir farvegi sínum fram hjá Elliðavatni og í Dimmu við Selásfoss, að frátalinni lítilli kvísl sem enn sést við hólinn Skyggni, skammt neðan Elliðavatns. Þegar stíflugarðurinn við Elliðavatn var byggður hækkaði vatnið  og fóru við það flæðiengjar við vatnið á kaf. Við þessar breytingar féll áin Bugða til vatnsins. Elliðaárdalurinn er afar fallegur dalur og þar er fjölskrúðugt náttúrufar. Í dalnum er fjölbreytt fuglalíf og áin geymir nokkrar tegundir fiska. Í Elliðaárdal má lesa merkilega jarðsögu, setlög eru greinileg á nokkrum stöðum og hraunið sem síðast rann niður dalinn fyrir meira en fimm þúsund árum, myndaði Elliðaárnar eins og þær eru nú. Víða má sjá ummerki hraunsins enn þann dag í dag og eitt gleggsta merki þess eru kvíslarnar tvær sem myndast skammt neðan Höfðabakkabrúarinnar, þar sem áin hefur brotið sér leið með jöðrum hraunsins.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2010 10:39:14 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 1403
Gamalt blogg